sunnudagur, apríl 30, 2006

Stefnan sett á hina fullkomnu sjöu

Tvær æfingar að baki og voru 5 á fyrstu og 6 á síðustu og því við hæfi að þetta fari stigvaxandi.
Á morgu í bæ garðanna klukkan 3. Vonandi að sem flestir sjái sér fært að koma því að ákveða þarf hvernig við eigum að láta Júlla(galdra Jón) redda búningum fyrir okkur, einnig tarf að ræða launamál því eftir sem ég best veit hafa ekki verið greidd út nein laun til Trausta mjóhanns og hann orðin mjög leiður á að bíða þannig að ef að þið eigið einhverjar dósir eða klósettpappír til að láta hann hafa þá væri það vel þegið, einnig vantar Einari klósetthurð og Bumbubana ef að Óli Ingi er búinn að nota hann.

Takk fyrir og sjáumst á morg klukk þrjú

mánudagur, apríl 17, 2006

Heitir en ekki feitir

Nú er málið að fara að setja betri fótinn á bolta, mjög slök mæting var á fyrstu æfingu og sagði Jesus Long að hann hafi ekki séð svona slæma mætingu síðann hann byrjaði að mæta þar sem fólk mætir þegar það þarf að mæta einhverstaðar sem aðrir eru mættir og kannski fleirri á leiðinni en ég hef ekki hugmynd um hvað það þýðir því ég kann ekki kínversku.
En næsta æfing er á fimmtudag sem er frídagur verslunarmanna og því allir að geta mætt.
Ef menn vilja hvarta yfir einhverju hringið þá í kvörtunarsíma team lebowski sem er 5800000

Takk fyrir

föstudagur, apríl 14, 2006

Úti æfing á morgun!

Ákveðið hefur verið að hafa æfingu á morgun, laugardaginn 15 apríl. Ætlum að hittast á sparkvelli eftir hádegi á morgun ef veður verður við hæfi og mæting verður góð þrátt fyrir stuttan fyrivara.

Frekari upplýsingar fást á morgun.

sunnudagur, apríl 09, 2006

Upphitunaræfingar

Sælir piltar

Mig langar að bjóða mig velkominn í hópinn hjá ykkur og hlakka til að leggja mína hæfileika til stuðnings þessa liðs! Mínir kostir eru tvímannalaust að ég get drukkið mikið, fer vel í tengdamæður, get búið til sósu, á gasgrill, hef gríðarlegt jafnvægi og fallega limaburði í danshreyfingum. Þess vegna hef ég skipað mig í það mikilvæga hlutverk að sjá um að hita upp og teygja á liðinu. Ég hef lengi verið að skipuleggja þetta og ákvað að best væri að halda sig við vissa rútíneru sem gæti hentað öllum og um leið bæta liðsandann og peppa mannskapinn saman. Ég taldi því best að fá til liðs við mig góðan hóp fólks til að sína það á filmu hvernig við förum að þessu í sumar, skellti með fallegri ballöðu til að halda hressleikanum. Gjöriðisvovel!

Kveðja Master Mjóhanns