miðvikudagur, júlí 19, 2006

Sumarfrí

Loksins komið sumarfrí. Næsti leikur verður ekki fyrr en 10. ágúst í deildinni á móti Bakkus. Miðað við það hvernig við spiluðum í síðasta deildarleik ættum við með öllum líkindum að tapa. Það skiptir í rauninni engu máli þar sem að við erum bara í þessu til þess að vinna bikarkeppnina. Næsti bikarleikur er hinsvegar 13. ágúst á móti Black Barbara og hefur Arnari verið meinaður aðgangur að okkar marki og er með öllu bannaður inni í okkar vítateig. Hann má samt með glöðu geði skora að vild í mark andstæðingsins.

Svo þarf að fara ákveða hvenær við ætlum í þessa blessuðu sjóstangaveiði!

þriðjudagur, júlí 04, 2006

Stangveiði!

Laugardaginn 15.júlí ætlum við að fara í sjóstangaveiði á stærstu snekkju Íslands. Ekki er búið að ákveða klukkan hvað við förum en við verðum að vera 15 til þess að fá ferðina á 2000 kjell á kjeft. Ferðin er í 3 tíma og er hægt ef vilji er fyrir hendi að taka bjór eða aðra hressingu með í ferðina. Grill er um borð þannig að hægt er að grilla veiðina, ef limir búast ekki við neinni veiði geta þeir komið með grillmat með sér. Ég mæli með því að Anall taki mat með sér þar sem hann er vanur að standa á milli stanganna... hahaha. Eftir ferðina verður svo farið í party og háð verður armbeygjukeppni.

Hér er mynd af snekkjunni...


Staðfesta verður ferðina í síðasta lagi föstudaginn 7.júlí með því að leggja 2500 kr inn á eftirfarandi reikning: kt. 150382-4249, 0322-13-100107.


Frekari upplýsingar eru á http://www.elding.is/tolbar/sea%5Fangling/