miðvikudagur, júlí 19, 2006

Sumarfrí

Loksins komið sumarfrí. Næsti leikur verður ekki fyrr en 10. ágúst í deildinni á móti Bakkus. Miðað við það hvernig við spiluðum í síðasta deildarleik ættum við með öllum líkindum að tapa. Það skiptir í rauninni engu máli þar sem að við erum bara í þessu til þess að vinna bikarkeppnina. Næsti bikarleikur er hinsvegar 13. ágúst á móti Black Barbara og hefur Arnari verið meinaður aðgangur að okkar marki og er með öllu bannaður inni í okkar vítateig. Hann má samt með glöðu geði skora að vild í mark andstæðingsins.

Svo þarf að fara ákveða hvenær við ætlum í þessa blessuðu sjóstangaveiði!

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Your site is on top of my favourites - Great work I like it.
»