Skuldadagar!
Nú þegar líða fer að keppnistímabili hafa stjórnendur Carlsberg deildarinnar verið að reka á eftir liðum að borga keppnisgjaldið fyrir komandi tímabil. Þar sem við ætlum að vinna þessa deild í drottins nafni verðum við því að borga þetta blessaða gjald, dýrð sé guði.
Ekki hefur verið ákveðið hvenær næsta æfing verður en það styttist í hana án Efa, hann verður ekki með. Gylltir limir eru hvattir til að koma með hugmyndir um næstu æfingu og blogga henni á síðuna ef hún poppar upp í haus yðar.
Stofnaður hefur verið reikningur fyrir Team Lebowski og fær KB banki að varðveita þær upphæðir sem inná hann fer. Limir eru því fjandsamlega beðnir um að leggja inn 4.990 kr sem fyrst, það ætti að dekka 60.000 kr þátttökugjald, inn á eftirfarandi reikning; kt. 150382-4249, 0322-13-100107.
Búningamál eru í vinnslu eins og er. Möguleiki er að kaupa búninga fyrir 4.900 kr, inni í því er treyja, stuttbuxur, sokkar og merking. Ef einhver getur fengið styrktaraðila fyrir Team Lebowski með því að selja auglýsingu á búninginn væri það yndislegt. Einnig er möguleiki að Raunverulegaleikinn (Árni Huldar) geti reddað búningum sem hann segist vera með í íþróttatöskunni sinni uppi á háalofti undir bleiku g-strengs nærbuxunum sínum með blúndinni vinstra megin í skattholinu sínu.
Verkefni félagsmanna;
1. Borga keppnisgjaldið.
2. Fá styrktaraðila á búninga.
3. Reyna að fá mögulega æfingaaðstöðu án endurgjalds, og kannski fótbolta.
4. Fara á bari/veitingahús og stunda glasalyftingar og koma sér í form (einnig er leyfilegt að lyfta í heimahúsi). 
Gylltir limir eru nú orðnir 14 talsins og er því samtals upphæð af 4.990 kr á hvern lim 69.860 kr. Ef styrktaraðili fæst mun þessi tala hækka vonandi. Allur umfram peningur rennur til styrktar Kvennaathvarfsins, nei djók! Það verður gert eitthvað gáfulegt við hann.
Amen







