þriðjudagur, mars 07, 2006

Heilir og sælir limir!

Ákveðið hefur verið að halda æfingu í kvöld. Æfingin mun vera heima hjá Jóa Quintana og tekið verður létt á þessari fyrstu æfingu Lebowski. Þar sem fjárhagsstaðan er ekki orðin mjög sterk, og Jói nennir ekki að baka, verða veitingar takmarkaðar, verða menn því að koma sjálfir með slíkt, s.s. snakk og kók.

Kveikt verður á sjónvarpinu þar sem Barcelona menn taka á móti Chelsea mönnum í sparktuðruleik.

Æfing byrjar kl 19:45

Engin ummæli: