þriðjudagur, maí 30, 2006

Fall í öðrum leik er fararheill

Annar leikur Lebowski var á móti Black Barbarra og endaði 0-6 fyrir hinum. Leikmenn Lebowski mættu seint og þunnt og var lítið um upphitun, mikil stemming var þó fyrir leikinn og áttum við í fullu té við liðsmenn Barbara í fyrri hálfleik þó svo honum hafi luktað 0-2 eftir að Anal hennti boltanum í eigið mark og klúðraði svo í hinu eitthvað líka. Í seinni hálfleik var skippt um markmann og varði Sunallinn eins og hershöfðingi þangað til að hann fór að fá skot á markið. Allt lék þó í lindin þangað til að varnarmaður Barbara setti ósmurðan þumalinn í rassgatið á Lalla sem brá svo við að honum var vikið af velli spjaldlaust sem er þyngsta refsing sem hægt er að útdeila og var hann heppin að vera ekki sendur til Arnars í tugthúsið en lögfræðingur hans er í málinu. Eftir þetta var einstefna að marki Lebowski og má vörninn hugsa sinn gang fyrir næsta leik, einkum Ómar sem sýndi alltof mikinn metnað.

Maður Leiksins: Óli hrafn(His Dudeness), þó svo lítið hafi heppnast þá reyndi Óli eftir mesta megni að halda boltanum inn á vellinum og það er meira en aðrir geta sagt.

Tilþrif leiksins: Eftirminnilegt útkast hjá Agli Sunal í seinni hálfleik sem fór næstum út fyrir teig og var þetta lengsta útkast sem hann hefur náð hingað til, til hamingju Egill.

Næsti leikur er á móti Hausastöðum næstkomandi fimmtudag 1.juni og þá er ráð að eiga rif.

föstudagur, maí 19, 2006

Dominos var sópað

Fyrsti leikur Lebowski að baki og fyrsti stórsigurinn í höfn, jafnt var á með liðum í fyrrihálfleik 0-0 eftir að lebowski menn sóuðu færum eins og þýskum verkamönnum en sem betur fer stóð Anal vaktina vel í markinu.
Í seinni hálfleik opnuðust öll göt á Dominos piltum og mörkinn létu ekki á sér standa og eftir c.a 3 minutur af seinni hálfleik spólaði Huldarinn sig beinstífan í gegn um vörninna og jarðaði einn í netmöskvan, Óli Gunn kláraði síðan erfitt færi eftir góðan og ósjálfselskan undirbúning rotarans úr vesturbænum, Freysinn bætti síðan þriðja við eftir stórglæsilegan undirbúning frá Shomernum sem síðan setti þrumufleyg stuttu seinna, Freysarinn setti síðan naglann í kistuna af stuttu færi 5-0.

Maður leiksins: Analinn var án efa maður leiksins en honum tókst einstaklega vel að verða fyrir boltanum og hefði ekki getað lokað markinu betur nema einfaldlega leggja það niður, glæsileg útspörk og bleik útgeislun í jafnt við mjúkar og fágaðar hreyfingar skiluðu sér í hreinu blaði í fyrsta leik.

Tilþrif leiksins: Huldarinn fékk aukaspyrnu rétt fyrir utan teig í seinni hálfleik sem hann vippaði fallega yfir markið og hlaut mikla sjálfsfyllingu og ánægju af enda falleg spyrna þar á ferð.

þriðjudagur, maí 16, 2006

Vinir hans Anals teknir í anal

Þá er komið að því að sjá hvort við getum sigrað litlu vini hans Einars en eins og menn muna þá var hann Anal okkar einn af hæstráðandi hjá þeim í 20 ár og ætti því að vera vanur að tuska þessa pissustráka til.
Einnig vil ég bjóða skeggjaða rotarann velkominn til starfa hjá Lebowski.
Hafa skal í huga að borga þarf gjaldið til fullnustu á fimmtudaginn kemur og því hefur verið sett sú regla að þeir sem ekki hafa borgað bæði gjöld á fimmtudag taka ekki þátt í kappleiknum.

P.S Þessi pistill er hafður bleikur limum til yndisauka.

laugardagur, maí 13, 2006

Leikmannakynning

Samfélagið hefur mikið verið að velta fyrir sér hverjir Team Lebowski limir séu, við erum ekki bara myndarlegir heldur er hver og einn gæddur sínum ónothæfu eiginleikum.


Arnar Jón - Er jafn hræddur og hann er stór, er með lögguna á speed-dial ef einhver skildi slá til hanns eða annara lima liðsins.

Jói - latasti limur liðsins vinnur bara á sumrin og býr frítt hjá mömmu sinni, hatar gæludýr(Jón Hannes).

Árni Freyr - Er í rusli alla daga yfir hármissi og göngulagi.

Óli Long - Fáir standast honum snúninginn í bjórglasarústi og almennum fylliríslátum þegar hann loksins nær að naga af sér ólina.

Júlli - Er kvennkvíslari liðsins, skilur kvennfólk betur en þær sjálfar, svokallaður húnkall.

Árni Huldar - Er með stjórnunaráráttu og öll stresseinkenni manns sem er með flugfreyju(Jói veit hvað ég á við)

Óli Hrafn - Ríkisfjárhirðir liðsins enda enginn sem fer betur með pening, einnig þekktur fyrir að passa upp á hina á fylleríum þá sjaldan hann lyftir sér upp.

Egill Sunal - Eini maðurinn sem maður er hræddur að vera nálægt, er skemmdarvargur og fiktiputti.

Valdi - Gafst upp á því að stækka í leikskóla og nýtir nú hæfileika sína við að rétta fólki hluti úr neðstu hillum byko.

Lárus - Skeggjaði rotarinn úr vesturbænum, maður sem þú villt ekki að fokki þér.

Egill Hjartar - Hefur sett í flestar beyglur af öllum limum liðsins enda með eindæmum hárprúður og með fallegt litarhaft.

Siggi - Gaf út bókina "Hvar er Siggi" sem fékk misgóðar viðtökur því ómögulegt var að finna Sigga.

Óli Ingi - Er með löginn á heilanum þú veist keyrir á 60 og skeinir með hægri, einnig þekktur fyrir að snúa menn niður eins og gert er í lögguskólanum.

Ómar - Er óskrifað blað fyrir sumarið en ef hann lýkist bróður sínum eitthvað verður hann örugglega búinn að eyðileggja blaðið fljótlega.

Einar - Fékk nýlega sitt eigið póstnúmer 201 Anal, er duglegur við allt nema það sem þarf að standa upp til að gera.

Trausti - Einn sá myndarlegasti og best vaxni limur liðsins, andlit liðsins.

Jónas - Fyrirmynd annara lima liðsins innan vallar sem utan.


Ási coach - Vonum bara að hann taki Jóa ekki úr lið-inu.

miðvikudagur, maí 10, 2006

Hvað er að gerast?

Laugardagur til lukku eins og þeir segja... ef þið vitið hverjir þeir eru, setjið það í commentið! Næstkomandi 13.mai, sem er laugardagur, skal haldið byrjunarhóf heima hjá Ómari. Þar verður slegið á létta strengi með gamansögum og bröndurum auk þess sem limir njóta þess að setja sínar eigin veitingar í haus. Ef Anall er í góðri múnderingu mun hann án Efa, sem ekki er boðið, taka lag með skítamóral við misjöfn fagnaðarlæti.

Fín mæting var á æfingu í dag þar sem allir voru vel dressaðir í glænýju búningunum. Alls mættu 10 sem er nýtt met hjá Lebowski. Stefnan er að halda æfingu á Laugardaginn kl 17:00 fyrir byrjunarhófið. Allir verða að mæta....

Þeir sem að ætla sér að fá að spila með Team Lebowski verða að mæta á byrjunarhófið. Til þess að geta mætt á byrjunarhófið verða Limir að mæta á æfingu sem verður haldin á Laugardaginn kl 17:00 í Garðabænum ef þeir vilja fá upplýsingar um kl hvað hófið byrjar og hvar heimili Ómars er staðsett. Ef það er staðsett... dumm,dumm,dumm,dumm....!

Búið er að draga í riðla og lentum við í besta riðlinum, C-riðli, getið séð hvaða lið eru með okkur í riðli á www.carlsbergdeildin.net. Fyrsti leikur er svo fimmtudaginn 18.mai kl 21:00 á móti FC Dominos. Við verðum að vera búnir að borga fullt þátttökugjald fyrir leikinn til þess að mega spila við pizzustrákana. Þannig að þeir sem eiga eftir að borga verða að borga STRAX.

Í stuttu máli:
1)Þeir sem eiga eftir að borga verða að borga strax svo við
getum spilað fyrsta leikinn
2)Æfing kl 17:00 á Laugardaginn 13.mai og svo partý eftir á.
3)Fyrsti leikur er 18.mai kl 21:00 á móti FC Dominos.

Bið að heilsa!

þriðjudagur, maí 02, 2006

Sunall og Anall fóru á stúfana

Tískukóngarnir tveir Sunall og Anall fóru og græuðu hátískuflík á limi klúbbsins sem verður opinberuð við hátíðarhöld 11.maí(vonandi við léttar veigar ef stemming er fyrir því).

Einnig minna menn á að reyna að fynna spons fyrir liði og greiða sínar skuldir.