Áfram í helvítisbikarnum!!!
Komnir á sigurbrautina aftur eftir að hafa verið á villibraut í síðustu leikjum. Við limir Lebowski tókum FC Premier og flengdum þá mjög fast á beran bossalingin þannig að þeir fóru grenjandi af leikvelli þegar dómari flautaði til leiksloka. Lokatölur urðu 6-1 og er þetta nýtt markamet. Staðan í hálfleik var 4-0 enda vorum við að spila með vindi í fyrrihálfleik. FC Premier átti í miklum erfiðleikum með að skapa sér færi gegn gríðarlega vel skipulögðum varnarleik Lebowskis. Þau skot sem þeir náðu voru annaðhvort frammhjá eða Einar varði í slow motion, það fór ekkert yfir. Markaskorarnir voru Valdi með 3 mörk, Arnar með 2 mörk og eitt sjálfsmark sem Arnar skapaði.
Liðið:
Einar (GK)
Óli H (D)
Árni H (D)
Óli G (D)
Valdi (M)
Egill H (M)
Arnar (F)
Bekkur:Ómar og Egill
Maður leiksins:Valdi Kaldi sem setti þrennu. Okkar hvíti Makalele var mjög gefandi í leiknum en þar á milli skjótandi á mark andstæðingsins sem endaði með 3 glæsilegum mörkum. Hann fær 3 klöpp frá mér.
Tilþrif leiksins:Þegar Einar varði stórglæsilega uppi í sammaranum, þetta var allt sýnt í slow motion þegar leikmaður FC Premier ætlaði að vippa boltanum upp í sammarann, Einar var þá með allann þungann á vinstri löppinni. En kraftaverk gerðist, Einar fékk hroll og hristi þungann hægt yfir á hægri löpp og náði að verja boltann með tilþrifum. Hann fær eitt klapp frá mér
Næsti leikur verður svo 22.júni kl 20:00 á móti Söllengbergers





