fimmtudagur, júní 08, 2006

Hauslausir á móti Hausum á stöfum

Seinnasti tapleikur sumarsins nú að baki og var hann gegn Hausastöðum, fyrir leikinn þóttu Lebowski sigurstranglegri þar sem hinir litu út fyrir að vera vangefnir en annað kom þó á daginn og voru limir grafandi í rassgatinu á sér í 50 mínútur. Lentum undir í byrjun leiks en vorum fljótir að jafna þegar Óli H tiplaði tá í bolta eftir snilldarsendingu frá Valda Kalda, en meira var ekki um dýrðir að þessu sinni og luku leikar 1-4 og nú þurfa limir að fara að hrista eitthvað úr honum ef ekki á illa að fara.

Maður leiksins: Ómar var marinn og sár eftir leikinn enda fékk hann nánast hvern einasta bolta í sig sem var spyrnt á vellinum og geta aðrir limir tekið hann sér til upplits fyrir næsta leik.

Tilþrif leiksins: Arnari tókst að komast upp allan völlinn án þess að spyrna né stíga í hægri fótinn glæsilegt það, en Arnar er einmitt þekktur fyrir stórglæsilegan hægri fót og nánast ónothæfan vinstri legg.

Engin ummæli: