sunnudagur, apríl 09, 2006

Upphitunaræfingar

Sælir piltar

Mig langar að bjóða mig velkominn í hópinn hjá ykkur og hlakka til að leggja mína hæfileika til stuðnings þessa liðs! Mínir kostir eru tvímannalaust að ég get drukkið mikið, fer vel í tengdamæður, get búið til sósu, á gasgrill, hef gríðarlegt jafnvægi og fallega limaburði í danshreyfingum. Þess vegna hef ég skipað mig í það mikilvæga hlutverk að sjá um að hita upp og teygja á liðinu. Ég hef lengi verið að skipuleggja þetta og ákvað að best væri að halda sig við vissa rútíneru sem gæti hentað öllum og um leið bæta liðsandann og peppa mannskapinn saman. Ég taldi því best að fá til liðs við mig góðan hóp fólks til að sína það á filmu hvernig við förum að þessu í sumar, skellti með fallegri ballöðu til að halda hressleikanum. Gjöriðisvovel!

Kveðja Master Mjóhanns

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Snilld mæli með þessu ;) spurning hvort við fáum ekki Snorra IDOL til að taka sönginn fyrir okkur hann lýtur allavega eins út og sá í myndbandinu.

kv.
Raunverulegaleikinn