föstudagur, maí 19, 2006

Dominos var sópað

Fyrsti leikur Lebowski að baki og fyrsti stórsigurinn í höfn, jafnt var á með liðum í fyrrihálfleik 0-0 eftir að lebowski menn sóuðu færum eins og þýskum verkamönnum en sem betur fer stóð Anal vaktina vel í markinu.
Í seinni hálfleik opnuðust öll göt á Dominos piltum og mörkinn létu ekki á sér standa og eftir c.a 3 minutur af seinni hálfleik spólaði Huldarinn sig beinstífan í gegn um vörninna og jarðaði einn í netmöskvan, Óli Gunn kláraði síðan erfitt færi eftir góðan og ósjálfselskan undirbúning rotarans úr vesturbænum, Freysinn bætti síðan þriðja við eftir stórglæsilegan undirbúning frá Shomernum sem síðan setti þrumufleyg stuttu seinna, Freysarinn setti síðan naglann í kistuna af stuttu færi 5-0.

Maður leiksins: Analinn var án efa maður leiksins en honum tókst einstaklega vel að verða fyrir boltanum og hefði ekki getað lokað markinu betur nema einfaldlega leggja það niður, glæsileg útspörk og bleik útgeislun í jafnt við mjúkar og fágaðar hreyfingar skiluðu sér í hreinu blaði í fyrsta leik.

Tilþrif leiksins: Huldarinn fékk aukaspyrnu rétt fyrir utan teig í seinni hálfleik sem hann vippaði fallega yfir markið og hlaut mikla sjálfsfyllingu og ánægju af enda falleg spyrna þar á ferð.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ég var með ykkur í anda, sat fyrir framan sjónvarpið í búningnum með sokkana uppi með bjór og sendi ykkur jákvæða strauma. Held að það hafi hjálpað mun meira en ef ég hefði nokkurun tímann mætt..

Reyndar hafði stjórn Carlsbergdeildarinnar samband við mig og bað mig vinsamlegast að mæta í næstu leiki svo að einhver samkeppni yrði í leikjum Lebowski...