miðvikudagur, maí 10, 2006

Hvað er að gerast?

Laugardagur til lukku eins og þeir segja... ef þið vitið hverjir þeir eru, setjið það í commentið! Næstkomandi 13.mai, sem er laugardagur, skal haldið byrjunarhóf heima hjá Ómari. Þar verður slegið á létta strengi með gamansögum og bröndurum auk þess sem limir njóta þess að setja sínar eigin veitingar í haus. Ef Anall er í góðri múnderingu mun hann án Efa, sem ekki er boðið, taka lag með skítamóral við misjöfn fagnaðarlæti.

Fín mæting var á æfingu í dag þar sem allir voru vel dressaðir í glænýju búningunum. Alls mættu 10 sem er nýtt met hjá Lebowski. Stefnan er að halda æfingu á Laugardaginn kl 17:00 fyrir byrjunarhófið. Allir verða að mæta....

Þeir sem að ætla sér að fá að spila með Team Lebowski verða að mæta á byrjunarhófið. Til þess að geta mætt á byrjunarhófið verða Limir að mæta á æfingu sem verður haldin á Laugardaginn kl 17:00 í Garðabænum ef þeir vilja fá upplýsingar um kl hvað hófið byrjar og hvar heimili Ómars er staðsett. Ef það er staðsett... dumm,dumm,dumm,dumm....!

Búið er að draga í riðla og lentum við í besta riðlinum, C-riðli, getið séð hvaða lið eru með okkur í riðli á www.carlsbergdeildin.net. Fyrsti leikur er svo fimmtudaginn 18.mai kl 21:00 á móti FC Dominos. Við verðum að vera búnir að borga fullt þátttökugjald fyrir leikinn til þess að mega spila við pizzustrákana. Þannig að þeir sem eiga eftir að borga verða að borga STRAX.

Í stuttu máli:
1)Þeir sem eiga eftir að borga verða að borga strax svo við
getum spilað fyrsta leikinn
2)Æfing kl 17:00 á Laugardaginn 13.mai og svo partý eftir á.
3)Fyrsti leikur er 18.mai kl 21:00 á móti FC Dominos.

Bið að heilsa!

3 ummæli:

Shomer sagði...

Við erum flestir vanir að vera í C-riðli svo við ættum að rúlla þessu upp, gaman að sjá nýja limi á síðustu æfingu allir í topp formi og valdi ´meira að segja búinn að stækka síðan ég sá hann síðast.

His Dudeness sagði...

Já ég var einmitt að spá því hvort Valdi væri búinn að stækka en var ekki alveg viss... en ég tók eftir því að Anall var búinn að fitna og var alveg handviss...

Nafnlaus sagði...

Spurning um að fitumæla liðið Jónas!!!!