Raunverulegaleikinn
Ég vil þakka það gríðarlega traust sem mér hefur verið sýnt með því að fela mér starf aðalframkvæmdastjóra félagsins sem og stöðu fyrsta strikers í liðinu og vil ég hér eftir vera kallaður Miss lélegur Kolbeinsson. Liðið er vel skipað af afar færum leikmönnum á öðrum sviðum en fótbolta, til að mynda bjórdrykkju og slagsmála. En eins og komið hefur á daginn og sáum það best hjá Gríska landsliðinu nú fyrir skömmu þá er það ekki bara spurning um að kunna fótbolta heldur er það samheldnin og móralinn. Því legg ég til að æfingarnar verði sem mest innanhúss fyrir framan tv-ið og þá spillir ekki fyrir að menn hafi vökva um hönd, þar sem horft verður á myndir á borð við "Remember the Titans", "koma svo", "þá sjaldan maður lyftir sér upp" og fl. og fl.
Að lokum vil ég ítreka þakklæti mitt til stjórnarinnar.
Áfram Liverpool
kv.
Miss Lélegur Kolbeinsson






3 ummæli:
Samt soldið erfitt að spila 4-6-0 þegar það eiga að vera 7 menn inn á ...... vá greinilegt að sumir eru góðir í stærðfræði
Haltu þig bara við sálarlærdóminn
kv. Einstein
Til hamingju með stöðuna Miss Lélegur Kolbeinsson. Aðalframkvædastjóra staðan var einmitt búin til fyrir þig og þína hæfileika. Það sem fellst í þessari stöðu er að redda styrktaraðila sem getur styrkt okkur við búningakaup, með því skilyrði að fá auglýsingu á búninginn. Ásamt því verður Aðalframkvæmdastjóri að sjá til þess að veitingar séu nægar fyrir liðsmenn, bæði á æfingum og leikjum. Eftir æfingar verður svo einn mikilvægur limur að sjá um frágang, ákveðið hefur verið að Aðalframkvæmdastjóri sjái alfarið um það verkefni.
Þessi gríðarlega mikilvæga staða er okkur öllum nauðsynleg og vonumst við því að vinnubrögð og dugnaður frá þér Miss Lélegur verði til fyrirmyndar.
Svo vil ég koma því fram að hugmyndir hafa verið um að spila 3-3-0, en endanleg ákvörðun hefur ekki verið tekinn
Skrifa ummæli