þriðjudagur, maí 30, 2006

Fall í öðrum leik er fararheill

Annar leikur Lebowski var á móti Black Barbarra og endaði 0-6 fyrir hinum. Leikmenn Lebowski mættu seint og þunnt og var lítið um upphitun, mikil stemming var þó fyrir leikinn og áttum við í fullu té við liðsmenn Barbara í fyrri hálfleik þó svo honum hafi luktað 0-2 eftir að Anal hennti boltanum í eigið mark og klúðraði svo í hinu eitthvað líka. Í seinni hálfleik var skippt um markmann og varði Sunallinn eins og hershöfðingi þangað til að hann fór að fá skot á markið. Allt lék þó í lindin þangað til að varnarmaður Barbara setti ósmurðan þumalinn í rassgatið á Lalla sem brá svo við að honum var vikið af velli spjaldlaust sem er þyngsta refsing sem hægt er að útdeila og var hann heppin að vera ekki sendur til Arnars í tugthúsið en lögfræðingur hans er í málinu. Eftir þetta var einstefna að marki Lebowski og má vörninn hugsa sinn gang fyrir næsta leik, einkum Ómar sem sýndi alltof mikinn metnað.

Maður Leiksins: Óli hrafn(His Dudeness), þó svo lítið hafi heppnast þá reyndi Óli eftir mesta megni að halda boltanum inn á vellinum og það er meira en aðrir geta sagt.

Tilþrif leiksins: Eftirminnilegt útkast hjá Agli Sunal í seinni hálfleik sem fór næstum út fyrir teig og var þetta lengsta útkast sem hann hefur náð hingað til, til hamingju Egill.

Næsti leikur er á móti Hausastöðum næstkomandi fimmtudag 1.juni og þá er ráð að eiga rif.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

I love your website. It has a lot of great pictures and is very informative.
»