Áfram í helvítisbikarnum!!!
Komnir á sigurbrautina aftur eftir að hafa verið á villibraut í síðustu leikjum. Við limir Lebowski tókum FC Premier og flengdum þá mjög fast á beran bossalingin þannig að þeir fóru grenjandi af leikvelli þegar dómari flautaði til leiksloka. Lokatölur urðu 6-1 og er þetta nýtt markamet. Staðan í hálfleik var 4-0 enda vorum við að spila með vindi í fyrrihálfleik. FC Premier átti í miklum erfiðleikum með að skapa sér færi gegn gríðarlega vel skipulögðum varnarleik Lebowskis. Þau skot sem þeir náðu voru annaðhvort frammhjá eða Einar varði í slow motion, það fór ekkert yfir. Markaskorarnir voru Valdi með 3 mörk, Arnar með 2 mörk og eitt sjálfsmark sem Arnar skapaði.
Liðið:
Einar (GK)
Óli H (D)
Árni H (D)
Óli G (D)
Valdi (M)
Egill H (M)
Arnar (F)
Bekkur:Ómar og Egill
Maður leiksins:Valdi Kaldi sem setti þrennu. Okkar hvíti Makalele var mjög gefandi í leiknum en þar á milli skjótandi á mark andstæðingsins sem endaði með 3 glæsilegum mörkum. Hann fær 3 klöpp frá mér.
Tilþrif leiksins:Þegar Einar varði stórglæsilega uppi í sammaranum, þetta var allt sýnt í slow motion þegar leikmaður FC Premier ætlaði að vippa boltanum upp í sammarann, Einar var þá með allann þungann á vinstri löppinni. En kraftaverk gerðist, Einar fékk hroll og hristi þungann hægt yfir á hægri löpp og náði að verja boltann með tilþrifum. Hann fær eitt klapp frá mér
Næsti leikur verður svo 22.júni kl 20:00 á móti Söllengbergers






4 ummæli:
Það verður samt alltaf að velja einn. Það geta ekki allir verið maður leiksins. En ég er alveg sammála þér, við vorum að spila glimmrandi fótbolta með glans. Og það var greinilegt að menn tóku skotskóna með sér í leikinn.
Já til hamingju drengir........það hefði verið óskandi að geta verið með....en það er enn óvíst hvenær ég má hreyfa mig aftur :(
hey félagar.. eruði með markmanns hanskana sem við lánuðum ykkur fyrir bikarleikinn ykkar? Mætiði ekki með þá í kvöld?!
King Atli (Black Barbara)
Jæja helvítis pungarnir ykkar, hvernig fór nú síðustu leikjum??? Á ekki að koma með recap úr leikjunum??
Skrifa ummæli